5.3.2007 | 12:01
Glámskyggni
Jæja. Glámskyggnir reyndust Urðamenn. Nema skýringin sé sú að Carl Jóhan hafi verið efstur í gær en misst af hnossinu í morgun. Söru Stridsberg skal innilega óskað til hamingju með Norðurlandaverðlaunin. Hún hefur skrifað áhugaverða bók um kerlinguna sem reyndi að myrða Andy Warhol, varð fræg fyrir þá tilraun í meira en korter og verður nú jafnvel enn frægari. Kannski í þrjú korter.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Þegar umhverfisráðherrann
hverfist umhverfis ráðuneytið
þá umhverfist alltaf ráðuneytið
um umhverfisráðuneytismann.
Eiríkur Kjögx (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 13:57
Saga af Ljónharði hinum fengsæla sem heiðrar okkur nú með nærveru sinni:
Kappinn milli lappa lá,
lán og happafengur.
Setti tappa sponsið á,
snótin hrappadrengur!
Eiríkur Kjögx (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 16:08
Saga af öðrum kappa sem einnig hefur heiðrað oss með nærveru sinni en hvílir nú lúin bein á milli alþjóðlegra verkefna:
Brundinn spara Bondinn má
en þó bara skamma stund.
Svo mun fara að serða gná,
svannaskara gefa brund.
Eiríkur Kjögx (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 16:57
innlitskvitt og kveðja
Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 18:56
Jamm...hvað það verður veit nú enginn vandi er um slíkt að spá; Lægi framtíð ljós sem dagur, lífið væri af og frá.
Jón Steinar Ragnarsson, 17.3.2007 kl. 19:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.