Tilhlökkun

Hér um árið komust femínistar að þeirri niðurstöðu að algóð(ur) Guð væri kona. Vinur minn Sigurður Árnason læknir benti þeim þá hæversklega á hinn augljósa skort á háttvísi sem felst í því að vilja bara hirða bestu bitana. Það gengur ekki, sagði hann, að ætla sér að hrifsa til sín Guð en skilja Djöfulinn eftir. Hann skal því fylgja með í þessum kynskiptum. Djöfull hentar ágætlega sem kvenkynsorð, beygist eins og ull.

Af þessu hlaust eftirfarandi limra:

Eftir lokaspöl lífsbrautarinnar
loks nýt ég kvenhylli minnar:
Á himnum í stuði
hjá henni Guði
eða á djúpslóðum Djöfullarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Frábær limra. Opnar augu mín fyrir að Djöfulin er auðvitað kona.

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 18.4.2007 kl. 13:55

2 Smámynd: Guðmundur Örn Jónsson

Alltaf góður að koma auga á hið smáa sem gefur tilverunni lit.

Guðmundur Örn Jónsson, 18.4.2007 kl. 14:12

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Við tökum gjarnan djöfulinn með í kaupunum.  Djöfsi er ekki ólíkur sumum (fáum þó) karlmönnum sem við konur dröttumst stundum með í fórnarlamshlutverkinu og erum þess vegna með meirapróf á. Hm.. fyrirgefðu góða Guð!

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.4.2007 kl. 17:26

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Verð alltaf að lesa enda gamall aðdáandi þinn Þórarinn sem barn með hlustun á Matthildi.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.4.2007 kl. 02:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband